Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

blogs

Vetrarsól - komin út

Vetrarsól - WintersunVetrarsól - WintersunÍ nýrri skáldsögu sinni, Vetrarsól, teflir Auður Jónsdóttir saman ólíkum heimum og varpar fram spurningum um lífsgildi, lífsviðhorf og lífsblekkingu – rétt eins og í hinum rómuðu verðlaunabókum Tryggðarpanti og Fólkinu í kjallaranum. Með óvæntum söguþræði og frumlegri sýn á tilveruna gefur Vetrarsól fyrri sögum höfundar ekkert eftir.


Viðbjóðslega góður dómur í þýskalandi

Þýska dagblaðið Sozialistische Tageszeitung fjallar ýtarlega um Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarinn Leifsson i sérstöku aukablaði um bókahátíðina í Frankfurt. Bókin kemur út fyrir þýskumælandi markað í næstu viku. Blaðið segir meðal annars að þvílík bók hafi aldrei verið skrifuð áður, þetta sé ótrúleg og viðbjóðsleg hryllingssaga.


Egill og grísinn

Ég hef aldrei verið hræddur við að gera at í Agli Helgasyni. Var hjartanlega ósammála honum í umræðunni um Tíu litla negrastráka og stend ennþá við mynd sem ég teiknaði af amlóða að hamast aftan á Silfurmanninum. Sú mynd var enda í rökréttu samhengi í umræðunni - believe it or not. Egill er einn umdeildasti fjölmiðlamaður samtímans, hann er réttilega gagnrýndur fyrir að vera með tvo þætti á RUV. Fyrir að vera of dómínerandi í umræðunni.


Nýju fötin keisarans

Samkvæmt mælitæki þessarar heimasíðu er myndskreytingin úr Nýjum fötum keisarans óhemju mikið sótt þessa dagana. Fólk virðist leita sérstaklega að þessu myndefni.
Af hverju ætli það sé?


Þorskhausastríðið

Ég held að það sé einhver misskilningur að Þjóðverjar hafi ekki húmor. Ég hló allavega þurrum kreppuhlátri þegar ég fékk þennan póst frá ágætum bókaútgefanda í fyrrum Austur-Þýskalandi:

… What is going on in Iceland?
I should better stop my children book activities and print money …


Kreppa


Ætlar mannætan að gleypa Evrópu með húð og hári?

Nú þegar örfáir dagar eru þangað til að bók Þórarins Leifssonar, Leyndarmálið hans pabba, kemur út hjá Leipziger Kinderbuchverlag og pantanir eru teknar að hrannast inn í þýskumælandi netverslanir, berast þær hörmulegu fréttir að Forlagið Torgard í Kaupmannahöfn hefur orðið mannætunni að bráð. Bókin kemur nefnilega út í Danmörku næsta haust.


Vestanvindar - bókmenntahátíð

Hin árlega bókmenntahátíð Vestanvindar verður haldin í Menningarmiðstöðinni Edinborg, laugardaginn 4. október kl. 16.00. Aðgangur ókeypis. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson fjalla um verk sín, þá einkum og sér í lagi þau sem tengjast Vestfjörðum á einn eða annan hátt.

Auður hefur skrifað fimm skáldsögur: Stjórnlaus lukka (1998), Annað líf (2000), Fólkið í kjallaranum (2004), Tryggðarpantur (2006) og Vetrarsól (2008). Hún hefur einnig sent frá sér tvær barnabækur, Algjört frelsi (2001) sem hún skrifaði í samvinnu við Þórarin Leifsson myndskreyti, og Skrýtnastur er maður sjálfur (2002), sem er ævisaga Halldórs Laxness fyrir börn.


Sérfræðingar að sunnan

Gamla góða gufan flutti viðtalið sem Haukur Már Helgason tók við okkur Auju í hljóðdeyfðum helli við Silfurtorg á Ísafirði fyrir rúmri viku síðann. Mér fannst ágætt að prófa þetta þar sem ég hef ekki setið í svona hljóðhelli áður. Þegar ég hlusta á þetta núna heyri ég að ég er óskýrmæltur og sit langt frá hljóðnemanum. Á sumsé ýmislegt ólært í þessum efnum.Svo er ég að nota undarleg orðfæri á borð við "taka inn". Taka hvað inn? Lýsi? Eiturlyf?

Viðtalið má heira hér.


Símon Birgisson og hyski hans

Við Símon höfum eldað saman grátt silfur alveg síðan að hann klíndi mér á forsíðu DV undir fyrirsögninni hommmahatari og það er ekki langt síðan að ég kallaði hann hataðasta blaðamann Íslands - sem var kannski satt á sínum tíma.

Símon átti ekki að klína mér utan á DV en kannski var það ekki heldur mest brilljant gjörningur lífs míns að lesa yfir mig af Ralf König hommamyndasögum og heimta að Hannes Hólmsteinn Gissurarson kæmi út úr skápnum. Þeir hommar og lesbíur sem ég þekki eru myndarfólk og ekki að bíða eftir að marhnúturinn HHG banki upp á.


Syndicate content