Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

blogs

Never been fucked

Ég hef aldrei lent í að einhver borgi mér ekki. Fór að pæla í þessu vegna þess að í fyrramálið þarf ég að skrifa út nokkra reikninga. Ekki síst bónusreikning handa JPV sem er bæ ðe way FOKKING SNILLINGUR!!! Hvar var ég? Jú ég var að lesa greinar á INT þar sem íslenskir grafíkerar væla hver ofan í annan um hvernig þeir eru teknir í öll göt út á einhver "spekk" og gratis vinnu og hvað veit ég.


Meistari Megas?

Ég er ánægður að heyra að Megas er kominn á heiðurslaun. Hann er sá eini sem ég veit um sem á þau skilið. Það er ár sí­ðan við kláruðum endurútgáfuna með Skí­funni. Ég verð að játa að þegar verkefnið hófst hafði ég ekkert sérstakt álit á Magnúsi, hafði hitt hann einstaka sinnum með pabba fyrir nokkrum árum og fundist hann frekar pervisin og ólykt af honum.


Ég tapa - Þess vegna blogga ég

Auja nennir aldrei að blogga. Samt er hún komin með heilt ritstjórnarkerfi fyrir sig á sí­nu egin léni; jonsdottir.com. Það er sennilega Lúserelementið sem fælir hana frá. Eins og allir vita þá er það lúserinn í­ okkur sem Bloggar. Ég tapa - þess vegna blogga ég. Ekki segja mér að það sé tilviljun að einn mest lesni blaðamaður landsins, Píí, sest niður og bloggar um köttinn sinn daginn eftir að honum er sagt upp hjá DV.


Íslenskt skúbb

Rithöfundurinn Dan Turell dó fyrir tí­u árum eftir að hafa skrifað slatta af spennusögum.
Það er ein á náttborðinu okkar: "Morðið í­ þvóttahúsinu". Ekkert sérstök. Hann hlýtur samt að hafa átt sí­na spretti þarna úti á Vesturbrú.
Nú er verið að bjóða upp dótið hans Danna svo erfingjarnir fái eitthvað fyrir sinn snúð.
Ritvél, hattur, sólgleraugu, pí­pur og stærðarinnar Hashismoli.


Bless Landssími


Nú er totil.com kominn í hýsingu hjá amerískum hippum í New York state. Ráð í tíma tekið þar sem totil@centrum áskriftin hjá Landsímanum sem er samtengd totilcom gerir lítið annað en að senda mér nígeríska fjármálaráðgjöf og vafasöm ráð um tippið á mér.

Nýja kerfið á totilcom heitir Drupal og er svona php-mysql vesen.


Hvað er málið?

Góður og umfram allt sangjarn dómur um "Hvað er málið" í­ mogganum. Ég er enþá að klóra mér í­ hausnum yfir þessari bók og hvernig hún komst hjá því­ að verða eitthvað disaster. Ég kláraði 208 sí­ður með myndskreytingum á rúmum mánuði. Hvernig er það hægt?


Hættur að blogga?

Neinei. Bloggið er mí­n veika hlið. Veit ekki hvernig ég á að útskýra það. Það er eithvað innilega pervers við að Blogga. Svo er eithvað kreatí­ft við að vera pervers á þennan hátt. Kanski verða til samtök eftir nokkur á fyrir Bloggara? Þetta er allvega vanabindandi. Ég veit um eina vinkonu okkar hjóna, virðulega húsmóður í­ vesturbæ Reykjaví­kur sem framdi einskonar bloggsjálfsmorð fyrir örfáum vikum sí­ðan er nú auðvitað komin aftur. Gat ekki hætt.


Syndicate content