blogs
Isolation Bay City
Submitted by totil on 20 July, 2008 - 17:54.Sólmundur, glaðbeittur blaðamaður Fréttablaðsins, tók heldur afdrifaríkt viðtal við mig áður en við hjónin flugum norður og niður. Mér tókst nefnilega að móðga alla Vestfirðinga á einu bretti. Lét hafa eftir mér að ég væri "... með allskonar rómantískar hugmyndir um sveitina ..." sem er ekki einungis móðgun við höfuðborg Vestfjarðakjálkans heldur má með góðum vilja lesa úr þessum texta vilja til óeðlilegs samneytis við húsdýr og annað þaðan af verra.
Bréf til Halldórs
Submitted by totil on 12 July, 2008 - 20:15.
Pabbi skrifarFljótlega eftir að ég kynntist konunni minni kom í ljós að afi hennar og faðir minn þekktust á árum áður. Þeir voru báðir listamenn, pabbi var nokkuð yngri og gat verið svolítið erfiður. Bréfið sem mér barst einhverju sinni úr fórum fjölskyldu eiginkonunnar er ansi spaugilegt. Pabbi hefur rifið kjaft við Halldór afa í kaffiboði og sér nú eftir því.
Pétur Leifur Pétursson er látinn
Submitted by totil on 9 July, 2008 - 20:18.
Pétur Leifur PéturssonÉg reyndi að ná í Pétur Leif í síma alla vikuna. Endaði með því að ég sendi honum tölvupóst.
July 8, 2008 1:47:45 AM GMT+02:00
Jæja
Ég hef ekki náð í þig í síma lengi.
Við erum að fara á klakann eftir viku. Verðum fram í desember. Ætlum að reyna að hitta á þig áður en við förum.
Bókin seld til Þýskalands
Submitted by totil on 23 June, 2008 - 19:22.
Myndina af okkur Auði að hella freyðandi Cava í glös tók Björg hans Árna Mathíassonar 30 mínútum eftir að Leipziger Kinderbuchverlag staðfesti að þeir myndu kaupa Leyndarmálið hans pabba til dreifingar í þýskumælandi löndum Evrópu. Vísir er með frétt um þetta.
Þetta var á bókadaginn 23.apríl þegar Barcelona breyttist í einn alsherjar bókamarkað. Já gott fólk. Barnabókahöfundar drekka kampavín á tyllidögum. Þeir éta líka og skíta og tala vonda íslensku ef því er að skipta.
Silfur Tonys
Submitted by totil on 13 June, 2008 - 10:27.Eitt furðulegasta sjónvarpsefni Spánar er vafalaust "Tony Rovira" á 25tv hér í Barcelona. Minnir á eftirpartý frá revíuárunum á fyrri hluta síðustu aldar. Hér sameinast kynskiptingar á borð við Carmen de Mairena, misheppnaðir poppsöngvarar í draggi, völvur með glerkúlur, tarrot snillingar, götulistamenn, skjólstæðingar féló og klámstjörnur á hraðri niðurleið.
Bogga Bloggari
Submitted by totil on 11 June, 2008 - 15:14.
Bogga BloggariÞað er þannig að ef maður hættir að blogga í lengri tíma þá er mjög erfitt að byrja á því aftur. Ég hætti síðast með hálfgerðum viðbjóði á bloggheimum. Var búinn að missa mig út í karp við undarlegt fólk á kommentakerfum. Fólk eins Boggu Bloggara.
Bogga bloggari er myndin af íslenska erkibloggaranum í kollinum á mér. Hún er bitur einstaklingur með aðeins of mikla menntun og aðeins of lítið af hæfileikum sem bloggar og bloggar og bloggar. Bogga skrifar langa lista um hvað henni þykir miður í þessum heimi. Hún hatar allt og alla en snobbar fyrir fólki eins og Agli Helgasyni og Doktor Gunna í von um athygli fjölmiðla.
Blogg
Submitted by totil on 12 March, 2008 - 12:08.Ég get ekki bloggað þessa dagana. Aðallega af því að ég er að skrifa tvær bækur í einu og það er vonlaust að blogga um leið vegna þess að maður verður svo lágkúrulegur í hugsun af því. Auðvelt að detta í eithvað þras og missa alla yfirsýn.
Þetta hljómar kannski hátíðlega en svona er þetta bara. Ég get ekki skrifað draugasögu fyrir börn og allt í einu kemur kafli um það hvað einhver bloggari sé vitlaus eða einhver bjöllusauður sem afgreiðir í sjoppu Íslamófóbískur.
Næst á dagkrá mannætunnar
Submitted by totil on 29 January, 2008 - 14:09.
Leyndarmálið hans pabba fer á Bókamessuna í Bologna á Ítalíu í lok mars 2008 og verður lögð fram í alþjóðlega keppni sem tengist henni.
Í september verður ein mynd úr mannætubókinni til sýnis í Ráðhúsi í Kaupmannahafnar í tilefni af ráðstefnu alþjóðasamtaka IBBY. 75 teiknarar frá öllum norðurlöndum taka þátt.
Leið mistök Moggans
Submitted by totil on 29 January, 2008 - 01:26.Reykjavik JihadÞau leiðu mistök urðu í birtingu á síðasta pistli okkar Auðar í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag að texti sem teiknaður hafði verið inn í talbólu féll niður. Ég birti myndina því hér eins og hún á að vera.
Ef einhver veit hvernig á því stendur að flöt EPS mynd sem vistuð hefur verið með JPG þjöppun missir út texta þegar hún er tekin inn í myndvinnslu Moggans þá væri gaman að heyra um það.
Textinn sem vantaði í talblöðruna var svona: "Svo sprengir þú bara, vinur".
Uppvakningar í Reykjavík
Submitted by totil on 22 January, 2008 - 14:40.Uppvakningar í Reykjavík

Það er spurning hvort er hryllilegra. Bíómyndin Dawn of the Dead frá 1978 eða nýja borgarstjórnin í Reykjavík þrjátíu árum síðar.
