Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

blogs

14 hryðjuverkamenn í næsta húsi

Á meðan að borgarskæruliðarnir Auður Jónsdóttir og Óttar M Norðfjörð voru að lesa yfir greinarnar í Íslam með afslætti inni í stofu hjá mér voru 14 pakistanskir pörupiltar að skipuleggja margfalt morð einni götu ofar í hverfinu okkar.

Ég gjörþekki þessar götur sem eru taldar upp í frétt El Periodico og hef sennilega mætt einhverjum af þessum meintu hryðjuverkamönnum á þröngum gangstéttunum. Zapatero forsetisráðherra óskaði löggunni til hamingju með vaskleg vinnubrögð núna í hádeginu og ég tek svo sannarlega undir það. Gott að þeir náðu þessum jólasveinum áður en þeir náðu að sprengja mig og mína í loft upp.


Kiljan - viðtalið

Rúmar tvær mínútur á besta tíma í þætti með metáhorf. Það munar um minna. Klipparar Kiljunnar hljóta að hafa verið í jólagjafaskapi. Nú eru tvær
vikur fram að jólum og styttist í að ég geti farið að blogga um annað en Leyndarmálið hans pabba.


Fimm stjörnu dómur í DV

Ég vissi ekki að það væri svona gaman að fá fimm stjörnu dóma. Það er eitthvað við töluna, fullt hús. Minnir mig á þegar ég var að spila póker í gamla daga. Hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum að ég myndi í tauta í barminn: Takk DV, gamli krókódíll - nú er það fullkomnað.

Enginn tepruskapur * * * * *


Mannlíf - umsögn

Núna er ég að svindla aðeins á ykkur. Nafni minn á tímaritinu Mannlífi skrifar síðu sem hann kallar Bækurnar sem ég má ekki dæma. Þetta er því ekki alveg marktækt. En skemmtilega stílað engu að síður.


Mannætusýningarskrá

Myndirnar á Mannætusýningunni í Iðu eru úr bókinni Leyndarmálið hans pabba. Sýningin hangir uppi á kaffihúsinu fyrir ofan bókabúðina í IÐU, Lækjargötu 2A. Henni lýkur um áramótin.


Morgunblaðið: Leigusali varð mannæta

„Kveikjan að þessari persónu er hræðilegur maður sem býr fyrir norðan Assistentens kirkegård í Kaupmannahöfn,“ segir Þórarinn Leifsson, teiknari og barnabókahöfundur, um mannætupabbann sem er aðalpersóna barnasögu hans, Leyndarmálið hans pabba. „Við ætluðum að leigja þarna við hjónin og hittum þá þennan hræðilega mann. Það varð kveikjan að bloggfærslu sem seinna þróaðist út í það að verða barnabók.“


Kiljan - toppdómur

Það er búið að taka upp stutt viðtal við mig fyrir Kiljuna þar sem ég er að undirbúa sýningu á myndum úr bókinni. Það verður sýnt í næstu eða þarnæstu þætti. Hér er umfjöllun um bókina úr síðustu Kilju. Mér sýnist þau vera nokkuð ánægð með bókina.


Frábær dómur í Morgunblaðinu

… um Leyndarmálið hans pabba á föstudaginn. Ég las hann í flugvélinni yfir Skotlandi. Fyrsti upplesturinn var í Bókasafni Kópavogs í hádeginu í dag, Sunnudag. Ef einhver vill panta mig í lestur þá er hægt að senda tölvupóst á totil@totil.com. Ég fæ auðvitað greitt samkvæmt taxta Rithöfundasambandsins. Hér er dómurinn:


Fjögra stjörnu dómur í Fréttablaðinu

Það kom dómur um "Leyndarmálið hans pabba" í menningarkálfi Fréttablaðsins í dag. Þið hafið sjálfsagt tekið eftir því að ég nota bloggið mitt til halda til haga umfjöllun um bókina mína þessa dagana. Svona verður þetta fram yfir áramót en þá get ég snúið við blaðinu aftur og verð væntanlega feginn að vera búinn með flóðið. Svona er dómurinn:


Bannaðu mig fíflið þitt, bannaðu mig!

Það er ekki hægt að segja annað en að bókin fari ágætlega af stað. Byrjaði með skemmtilegri umfjöllun í sjónvarpi og svo birtast „kvótar“ hér og þar. Stjörnublaðamaðurinn Kolbrún Bergþórsdóttir tók viðtal við mig í 24 Tímum og hrósaði einnig bókinni í tímaritinu Ísafold.


Syndicate content