Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

blogs

Óvenjulegasta bókin - segir Stöð 2

Ég rakst á þáttinn Mannamál sem Sigmundur Ernir er með á Stöð 2. Þeir hefðu kannski átt að kalla hann frekar Mannát, þá hefði maður tekið eftir honum fyrr. Sigmundur Ernir bauð Katrínu Jakobsdóttur í þáttinn til að fjalla um bókina mína. Þau Sigmundur og Katrín koma vel fyrir í sjónvarpi og ég var mjög sáttur við þessa umfjöllun. Sigmundur opnaði umræðuna með því að segja að Leyndarmálið hans pabba væri: Einhver óvenjulegasta bók sem kemur út fyrir þessi jól, ef ekki sú óvenjulegasta á síðari árum.


Viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við mig í 24 stundir

ViðtalViðtalAðalpersónan í nýrri barnabók eftir Þórarin Leifsson er faðir sem er mannæta. Þórarinn segir að það henti sér að skrifa fyrir börn þar sem það forði sér frá því að fela sig bak við kaldhæðni.

Þórarinn Leifsson hefur sent frá sér bráðskemmtilega og sérlega frumlega barnabók, Leyndarmálið hans pabba, en þar er ein aðalpersónan faðir sem er mannæta. Þórarinn skrifaði bókina Algjört Frelsi með Auði Jónsdóttur árið 2001.


Bókin mín er komin í búðir

Ég verð að játa að það grípur mig ákveðin óraunveruleikatilfinning þessa dagana. Undanfarnar vikur hafa verið soldið flippaðar. Bæklingur með tveimur köflum úr Leyndarmálið hans pabba hefur verið þýddur á fjögur tungumál ýmist af mér sjálfum eða vinum. Bókin er komin í nánari skoðun hjá bókaforlögum í fimm löndum eftir bókamessuna í Frankfurt.


Viltu vera í Barselóna um jólin?

Þú á Þorláksmessu í fimmtán, tuttugu stiga hita á útikaffihúsi á friðsælu torgi. Á meðan er þjóðin að sprengja sig á hlaupum í Smáralindinni í kapphlaupi við að kaupa síðustu pakkana. Þú drýpur á Cerveza fyrir eina evru úti á horni á meðan mörlandinn treðst inn á næsta bar og grátbiður um að fá að borga tíu evrur fyrir sömu veigar. Þú ferð út að borða annan í jólum á meðan fólkið heima þeytist á milli boða til að gera öllum til geðs á meðan gremjan kraumar undir ...


Montblogg rit og myndhöfundar

VændiVændiÞað er nú meira hvað ég nenni lítið að blogga. Og síðast þegar ég gerði það misti ég mig út í hálfgert þus yfir sjónvarpsþætti. Kannski er ég að spara mig fyrir pistlana í Mogganum á sunnudögum sem við Auja skrifum saman og til skiptis. Sá síðasti var á blaðsíðu nítján í dag. Myndin lukkaðist vel miðað við að ég hafði legið andvaka nóttina áður af því að ég asnaðist til að drekka rótsterkt kaffi undir miðnættið. Þið getið skoða moggamyndirnar á þessari síðu


Kilja Kleins II

Auja benti mér á bókmenntaþátt í íslenska sjónvarpinu sem tvífari Harry Klein úr Derrick sjónvarpsþáttunum stjórnar.
- Þú verður að horfa á þetta, sagði hún með þunga. Ég stóðst ekki mátið og fíraði upp vafra eftir stutta umhugsun.


Ég er með kynsjúkdóm og fótasvepp

Tvífarar 2Tvífarar 2Ekki kyssa mig, þá smitast ég af kynsjúkdómi, segir Auja, áður en hún dregur mig með sér yfir götuna til lyfsalanna. Heimsókn til þeirra er alltaf ævintýri því þetta eru vinir okkar. Annar þeirra er Prússi með stóran eyrnalokk. Hann brosir út að eyrum þegar við mætum, stundum bregðum við á leik og tölum þýsku við hann. Jawohl mein herr. Bitte sehr. Þá skilur hinn lyfsalinn ekki neitt. Hann er lítill hýreygður Katalani, ég held reyndar að hann hafi yfirumsjón með búðinni.


Íbúðir í Barselóna

þjónninn góðiÞessi auglýsing á Bjartsvefnum er okkur nokkuð skyld þar sem um er að ræða stórvin okkar og nágranna, Enric Huguet Arias.
Við kunnum Öglu bestu þakkir fyrir þessa snilld. Hvar náði hún í þessa  mynd? Hún hefur aldrei séð þjóninn en dregur samt upp mynd af honum.


Sjaldan launar kálfur ofeldið

Já við vorum aldeilis stríðalin um helgina og því hressandi að fara í ræktina og
hamast aðeins og kæla sig svo niður í sundlauginni. Mér sýnist vera einhver dumbungur yfir borginni í dag sem er óvenjulegt á þessum árstíma. Veðrið er yfirhöfuð búið að vera mjög þægilegt, hefur hangið fyrir neðan 28 selsíus.


Sumar í Barselóna

TvífararTvífararAngel er hættur að öskra á sjónvarpið. Ef ég skil hann rétt þá er barnabarn hans flutt inn til hans með tvær litlar stelpur, tvíbura, eftir heldur stormasaman skilnað. Við heyrum litlu grísina hlaupa skríkjandi um gólfin fyrir ofan okkur og Angel stendur út á svölum með rauðþrútin augun.
- Get ekki sofið fyrri þessum litlu skröttum. Þær vekja mig alltaf í síestunni.


Syndicate content