blogs
Leyfið mér að drekka í friði!
Submitted by totil on 5 May, 2007 - 23:30.Það er ekki leiðinlegt að lesa spænska netmiðla. Hvað þá þegar frétt um fyrrverandi forsætisráðherra Spánar er slegið upp. Ógöngur þessa manns í fjölmiðlum eru með eindæmum. José Maria Aznar réð ríkjum á Spáni frá 1996-2004. Hann hreifst af kenningum frjálshyggjumanna líkt og ýmsir í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Anders Fogh.
Kúkum á kerfið
Submitted by totil on 27 April, 2007 - 16:54.Heimasíðan mín liggur á tölvudisk einhverstaðar í biblíubeltinu í bandaríkjunum. Kanski í hrúgu inni á kontor innan um nýprentaða bæklinga um að fóstureiðingar séu glæpur gegn mankyninu. Ég sé þá fyrir mér strákana á stöðinni, ég hef unnið með svona labbakútum áður. Frjálslega vaxnir ameríkanar sem ganga með sérsniðnar fullorðinsbleiur til að geta haldið í við króníska drullu vegna kaffidrykkju.
Janteloven á Sigtinu?
Submitted by totil on 24 March, 2007 - 03:27.Ég rakst á sjónvarpsþáttinn Sigtið þegar ég fór inn á podcast.is vegna þess að ég var að athuga með efni fyrir argentískan kunningja minn sem er að læra íslensku. Ég les íslenska netmiðla daglega til að reyna að fylgjast með því sem er að gerast á klakanum góða. Hleð inn Tvíhöfða, Víðsjá og Kastljósi og les fullt af bloggum.
Engill meðal vor
Submitted by totil on 14 March, 2007 - 00:56. - Hvað! Ertu búin að fá þér maríhúúúúúana í morgunmat eða hvað?! Hvern fjárann ertu að þvaðra tæfan þín!
Ég hrekk upp úr værum svefni. En þetta er bara Angel á hæðinni fyrir ofan okkur. Hann er að rífast við morgunfréttirnar eins og svo oft áður. Ég heyri hvernig glymur í sjónvarpstækinu.
- Jæja já, melluhalinn þinn. Þú heldur að þú getir falið þig þarna bak við einhvern míkrófón, ég á nú eftir að bíta úr nálinni með þig!
Spánn ljómar
Submitted by totil on 6 March, 2007 - 23:36.Við vorum búin að bjóða spænsku deildinni að koma og skála í Cava upp úr klukkan 17 á sunnudag. Það þurfti að vígja íbúðina okkar á Rambla Del Raval 47 endanlega. Síðan vorum við óvænt með fólk úr sama liði í mat á laugardagskvöld svo helgin var eiginlega ein stanslaus veisla. Fólkið í íbúðinni við hliðina á okkur var líka með veislu og á meðan ég eldaði gat ég horft yfir patíóið á þau þar sem þau sátu við langborð og sungu einhverja baráttusöngva.
Danmörk brennur
Submitted by totil on 6 March, 2007 - 23:06.Núna logar gamla hverfið okkar í óeirðum. Get ekki sagt að ég fái heimþrá þó að Danmörk hafi verið okkur hjónum góð ef allt er tekið saman.
Það er vond tilfinning að komast ekki inn til sín, að heyra í skammbyssum í nóttinni og finna lyktina af brenndu gúmmíi þegar maður skreppur út til að kaupa kaffi. Og enginn skilur almennilega hvers vegna er barist. Þannig eru stríð.
Ísland, best í heimi!
Submitted by totil on 28 February, 2007 - 13:04.
Þorrablótið í Barcelona var mjög vel heppnað. Margir vinir og kunningjar okkar í borginni voru mættir galvaskir á svæðið.
Við höfðum meira að segja dregið með okkur hinn íslenskunemandi Roberto Otero með og flökkukindina Hjördísi. í móti okkur við borðið sat spænskur maður sem hafði búið í vesturbænum í Reykjavík árið 1973 og talaði ennþá furðu góða íslensku. Hann hafði tekið unga dóttur sína með, hún vann ferð til íslands fyrir tvo í happadrætti kvöldsins.
Vilmundur, ég elska þig
Submitted by totil on 28 February, 2007 - 12:31.Við fórum í Ikea um daginn og fengum okkur sænskar kjötbollur með rjómasósu. Ég er ekki vanur svona mat lengur og enda þótt ég yrði pakksaddur - mér fannst hann raunar nokkuð góður - þá skildi hann eftir undarlega velgjutilfinnningu í maganum, svona eins og eftir símtal við skandínavískan embættismann.
Íslensk gredda
Submitted by totil on 23 January, 2007 - 00:42.
Það er mikið í fréttum heima að Guðmundur í Byrginu hafi látið einhvern krakkaasna ríða sér með plasttyppi. Barnið tók myndir af þessu sem öll þjóðin situr nú andstutt yfir, enda þótt enginn botni lengur í því hver nauðgaði hverjum og Guðmundur þessi haldi því jafnvel fram að krakkagrísinn hafi byrlað honum einhverri ólyfjan svo hann hafi legið afvelta eins og rolla.
Myndir af okkur hjónum
Submitted by totil on 28 December, 2006 - 00:18.Auja gaf mér myndavél í jólagjöf og ég er búinn
að hlaða slatta af myndum upp á þessa myndasíðu. Kanski ætti ég bara að gera meira af því að teikna og taka myndir. Láta myndirnar tala eins og fíflið sagði.






