blogs
Góðir Íslendingar
Submitted by totil on 8 December, 2006 - 18:31.
Íslandsferðin byrjaði með krónísku nefrennsli. Það var gott að sjá ekki nokkurn mann úti á götu heldur bara skítuga skafla og nýja bíla brussast yfir þá. Þessi borg er blautur draumur mannhatarans. Reykvíkingar fela sig almennt bak við stýri en eru viðræðugóðir þegar þeir eru króaðir af. Starfsfólk í sjoppum man eftir þér eins og þú hafir aldrei farið neitt og á hverju götuhorni er heilsað eða kinkað kolli.
Beljað í Berlín
Submitted by totil on 8 December, 2006 - 18:03.
Ég er búinn að segja frá íbúðinni okkar í Barcelona og því sem henni fylgir. í leiðinni hingað suður í fyrra sinnið var hins vegar áð í Þýskalandi. Fyrst í Greifswald þar sem okkur var tekið með kostum og kynjum af stórvini okkar Doktor Hartmut Mittelstí¤dt og svo í Berlín. Hér er örsaga þaðan.
Ferðin langa
Submitted by totil on 8 December, 2006 - 16:04.
Við Auja ferðuðumst sex sinnum í flugvél á fimm vikum í lok ársins 2006. Við flugum samtalst 8785 kílómetra sem er aðeins lengra en flugleiðin frá Kaupmannahöfn til Karakas, höfuðborgar Venesúela. Svona var ferðin:
Kaupmannahöfn - Berlín 361km
Berlín - Barcelona 1509 km
Barcelona - Kaupmannahöfn 1772 km
Kaupmannahöfn - Reykjavik 2103 km
Reykjavik - London 1894 km
London - Barcelona 1146 km
Sjóræningjaborgin
Submitted by totil on 13 November, 2006 - 23:59.Það var ævintýri líkast að koma búslóðinni upp á fimmtu hæð. Meters breiður stigagangurin með holi sem var sannkallað hyldýpi var lítt árennilegur.
Áður en ég verð vændur um ýkjur hvað varðar þessa stórkostlegu íbúð í Barcelona með tveim risasvölum er rétt að taka fram að hún er aðeins til bráðabrigða. Þetta er dekuríbúð eigenda húseignarinnar. Okkar framtíðarhýbýli eru á þriðju hæð. Sú íbúð er ekki laus fyrr en í lok ársins svo við fengum þessa lánaða þangað til. Við munum vissulega sjá eftir risasvölunum en um leið verður styttra niður á götu og auðveldara að skipuleggja plássið þar sem úr fleiri aðskildum herbergjum verður úr að moða.
7-0 fyrir Ãsland
Submitted by totil on 8 October, 2006 - 21:06.Dem I kælderenÞað má segja að fjölskylda mÃn sé áberandi à Danmörku þessa dagana. Fyrst er það Auja sem skorar sjö eða fleiri góða dóma à öllum stærstu blöðunum á tÃu dögum. Geri aðrir betur, við erum ennþá að jafna okkur á þessu. Nei, við erum barasta roggin.
Það fór svo auðvitað þannig að fyrsta alvöru blaðið sem sló upp mynd eftir mig var Politiken. à laugardaginn var lögð heilsÃða à Bókablaðinu undir þrusudóm um Fólkið à kjallaranum, myndskreytinguna af kápunni og link á þessa sÃðu hér - sem skilar sér að vÃsu ekki à vefútgáfu blaðsins. Þessi dönsku almennilegheit minna soldið á klapp á bakið frá gömlum félaga à partÃi áður en maður yfirgefur svæðið. Við förum sátt og vel haldin frá SkandÃnavÃu.
Íslenskir rasistar blogga
Submitted by totil on 5 October, 2006 - 19:26.Blog blog klanSíðustu vikur hef ég rekist á nokkuð sem mætti flokka undir fáfræði og rasisma á íslenskum bloggsíðum. Spjótin hafa beinst að fólki sem er alið upp í Múhameðstrú. Ég ætla ekki að leggjast svo lágt að tilgreina þessar bloggsíður og fara þannig niður á sama plan en mig langar til að tala um hvers vegna mér sárnar þessi umræða.
Ég vil byrja á að taka skýrt fram að sjálfur er ég ekki Múhameðstrúar og hef takmarkaðan áhuga á trúmálum yfirleitt þó að ég hafi hneigst til kristni í nokkrar mínútur þegar dóttir mín fermdist í vor. Það má segja að þekking mín á múslimum sé fyrst og fremst byggð á óformlegum samskiptum við þá þegar ég kaupi matvörur á markaði eða skyndibita í sjoppu. Það þýðir ekkert að reyna að klína á mig að ég sé einhver "halal-hippi" eins og Danir upnefna þá sem ganga langt í áhuga á arabískri menningu. Mér er slétt sama hvort menn beygja sig í átt að Mekka eða næstu krá.
Óeirðir á Nørrebro
Submitted by totil on 24 September, 2006 - 19:24.
Auja dreif mig út til að éta hamborgara um fimmleytið í dag. Og þannig atvikaðist það að við hjónin drógumst inn í óeirðirnar á Nørrebro. Þegar við nálguðumst skyndibitastaðinn neðarlega á Nørrebrogade, sáum við að einhverskonar mótmæli voru í gangi á Brú Lúísu Drottningar. Fyrir þá sem hafa gaman af sögu má benda á að það var einmitt á þessari brú sem óeirðirnar miklu hófust vorið 1993 í kjölfar þess að Danir sögðu já í kosningu um aðild að Evrópusambandinu.
Seiðmagnað haust
Submitted by totil on 10 September, 2006 - 14:10.Auja í góðum gírÉg er loksins búinn að uppfæra síðuna hennar Auju minnar. Það tók mig örfáar klukkustundir þar sem allt útlitið var til, ég átti bara eftir að uppfæra kerfið. Ekki seinna vænna því bókin kemur út á dönsku í þessum mánuði og fleiri útlendingar að spá í þýðingar. Þetta er vefsíða fyrir blessaða útlendingana en við hin getum samt fylgst með athafnaskáldinu Auði Jónsdóttur. Bloggið á forsíðunni verður uppfært reglulega. Þetta er svona fréttasíðublogg, ekkert um það hvað skáldið les á klósettinu.
Herra Austurbrú
Submitted by totil on 18 August, 2006 - 01:10.
Mr. OsterbroÞað er auðvelt að þekkja hann. Tómlegt augnaráðið, Beckham-greiðslan og ferhyrnd gleraugun koma upp um hann. Hér er danskur bankastarfsmaður á ferð.
Ungur og upprennandi ofan í kaupið.
- Við Danir stöndum framarlega í tækni og allri hönnun, segir hann. Það gengur allt mjög vel í Danmörku. Mjöööög vel.
Til hamingju ReykjavÃk
Submitted by totil on 30 May, 2006 - 10:59.
Smelltu til að sjá hvað þú kaustÉg verð að viðurkenna að ég fylgdist lÃtið með þessum kosningum á æskuslóðum mÃnum, enda erfitt að taka borg alvarlega sem hefur kosið að kljúfa sig à tvennt með flugvelli sÃðan à seinni heimsstyrjöld. Meira að segja BerlÃn þorði að fjarlægja sinn múr.
Ég var sÃðan að horfa á Kastljós á netinu à gærkvöldi þegar ég komst að þvà að ReykjavÃk ákvað að fá tvær Górillur til að stýra borginni næstu fjögur árin.
