Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

blogs

Ég elska þig, Sylvía Nótt!

Heil SylviaHeil Sylvia- Hvað heldurðu að Sylvía Nótt sé að gera núna? spurði konan mín örvæntingafull þegar ég rétt henni kaffibolla upp í rúm í morgun. Svona rétt eins og hún hefði misst uppáhaldsdóttur sína.

Sjötíu þúsund Grikkir gerðu heiðarlega tilraun til að púa Sylvíu Nótt út af sviðinu í Aþenu í gærkvöldi og hún sparaði sér þannig loftblástursvélina sem sænska karríerhlussan Carolla var búin að stiilla upp fyrir framan sviðið. Svækjan af sjötíu þúsund fetaostum gaus yfir Sylvíu með langvinnu Púúúúúi og þegar ljóst var að hún var dottinn úr keppni urraði konan mín á milli samanbitinna tanna:
- Ég horfi sko aldrei aftur á þessa ömurlegu keppni.
- Grikkir eru vita húmorslausir, tautaði ég.


Sögur frá Baugslandi

Eyþór fullurEyþór fullurÞað hefur verið talað um að ræða Bill Clintons fyrir Baugur Group í­ glerhúsinu í­ Tí­volí­ hafi kostað tí­u milljónir. Færri velta því­ fyrir sér hvað 5 mí­nútna einkadans goðsins með einum yfirmanni grúppunnar góðu kostaði.
- Ok, Billy boy! Just pretend Im Monika.

En hvað með það. Það sem skiptir máli er kannski að nú höfum við − ég segi við vegna þess að allt sem Baugur gerir er heimfært á alla íslendinga − náð að fullkomna tómhyggjuna. Við erum feita stelpan í­ Hví­ta húsinu. Við erum Paris Hilton. Við erum Pete Doherty. Við erum nýrí­k fí­fl sem öll heimsbyggðin bí­ður eftir að geri mistök.


Ég er búinn með námslánin, hvað á ég að gera?

Það er leikur að læraÞað er leikur að læraÉg var að uppfæra tveggja ára gamlan gagnagrunn og eins og sjá má þá er sumt í sultu þó ég hafi sloppið með mesta skrekkinn. Er bara að bíða eftir að einhver skrattans forritari í miðvesturríkjum USA uppfæri viðbót við kerfið sem sér um að birta myndir rétt við greinar. Engin furða að það sé Jihad í gangi. Viss um að Bensi Laden situr í einhverjum helli í Afganistan og bíður eftir viðbót við vefumsýslukerfi Al Kaída. Og hver veit? Kanski sendi hann flugvélarnar á tvíburaturnana af því að MS Word krassaði þegar hann var að skrifa skáldsögu.


Danmörk þú gerir mig sjúkan!

LjósaskiltiðLjósaskiltið- Mella!
Ljóska af hreinræktuðu dönsku kyni er að hjóla heim til sí­n eftir vinnu í­ úthverfi Kaupmannahafnar. Hún mætir tí­u ára snáða af arabakyni, svokölluðum afkomanda innflytjenda. Hann æpir aftur:
- Mella!. Konan snarstöðvar hjólið og hvessir augun á drenginn:
- Hvers konar orðbragð er þetta eiginlega Lille Mand!?
- Sko sjáðu til - segir drengurinn og er hvergi banginn - ég er bara að verja tjáningarfrelsið.


Meira um stóra Runkaramálið

Ég skúbbaði runkaramálinu inn á Moggann. Ég henti tengli inn á kunningja minn á vefsetri mbl.is með MSN og hann staðfesti rétt í þessu að það var sú sending sem kom þessu máli af stað. Daginn eftir var DV með þessa frétt á forsíðu ásamt fullu nafni og mynd af meintum runkara. Það kemur engum á óvart að heilögu pissudúkkurnar á DV noti tækifærið og nýði mannorð íslensks viðskiptafræðings niður í svaðið. Það athyglisverðasta í þessu máli er hinsvegar það að maðurinn er að öllum líkindum saklaus. Það kemur í ljós þegar frétt DV er lesin til enda.


Á Nørrebro

Við Auja tókum leigubíl um sjöleytið. Þreytt og slæpt eftir yfirleguna og það var ískalt. Fórum auðvitað að tala við leigubílstjórann um teikningarnar og atburði dagsins; mótmæli á ráðhústorginu, stympingar á milli heittrúaðra og nýnasista. Leigubílstjórinn var alveg brjálaður út í Dani, hann sagðist hafa búið í þessu landi í 28 ár og Danir væru allir paranoid fasístar. Ég get ekki farið í strætó án þess að þetta lið glápi á mig alls staðar, tautaði hann. Þetta er nojað lið. Ég get ekki verið í Kúrdístan því það land er ekki til. Ég get ekki verið hér. Hvar á ég að vera? Þú verður að trúa að allt verði gott, sagði ég. Hann varð svolítið hissa á þessari athugasemd. Tortrygginn eins og hann ætti erfitt með að staðsetja mig í þessu öllu. Hálf Dani?


͍slendingur meikar það

Humar og ...Humar og ...Enn eru landar mí­nir að gera það gott hér í­ kóngsins Kaupmannahöfn eins og sjá má í­ Dagbók Lögreglunnar í­ dag:
Livgarderne ved kasernen i Gothersgade fik sig tidligt tirsdag morgen en noget særpræget oplevelse, da en mere eller mindre beruset islænding begyndte at onanere med front mod livvagterne.


Allah er mikill

Ég er frekar gramur út í­ ritstjóra Jótlands Póstsins og þessa Muhamed skopmyndateiknara hans. Sumum dettur kannski í­ hug að það komi úr hörðustu átt að ég sé farinn að verja ritskoðun á skopmyndum. En það er nú bara þannig að þegar þú býrð í­ heimi sem er orðinn að einu stóru jarðsprengjusvæði þá áttu að stí­ga varlega til jarðar. Ef ég drulla yfir einhvern Hannes Hólmstein Gissurason á blogginu mí­nu þá er ólí­klegt að palestí­nskir hryðjuverkamenn geri innrás á skrifstofur í­slenskra myndskreytara daginn eftir. Fí­flaskapurinn í­ mér skaðar í­ versta falli mig sjálfan.


Sölumenn dauðans

Drug dealer

Það vita það margir sem þekkja mig að ég get verið kjaftfor með afbrigðum. Sumir kunna að meta herra Bigmouth en aðrir halda sér í­ hæfilegri fjarlægð eins og gengur. Þetta getur verið vafasamur hæfileiki, hversu stutt er á milli orða og hugsana hjá mér. Dæmi um þetta var sí­ðla kvölds fyrir nokkrum dögum þegar við hjónin mættum hundi nokkrum í­ götunni okkar eins og svo oft áður. Hundkvikindi þetta er á stærð við vetrargamlan kálf og ófrýnilegt mjög.


Sprengjan

Við urðum að rýma svæðið vegna sprengjuhótunnar. Nú er ég ekki að ljúga eins og fyrir jól, þegar ég sagðist vera í­ grjótinu þegar ég var í­ rauninni að lýsa vinnuaðstæðum á Kristjánshöfn.


Syndicate content