Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

Viðbjóðslega góður dómur í þýskalandi

Þýska dagblaðið Sozialistische Tageszeitung fjallar ýtarlega um Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarinn Leifsson i sérstöku aukablaði um bókahátíðina í Frankfurt. Bókin kemur út fyrir þýskumælandi markað í næstu viku. Blaðið segir meðal annars að þvílík bók hafi aldrei verið skrifuð áður, þetta sé ótrúleg og viðbjóðsleg hryllingssaga.

Blaðið vitnar í brot úr sögunni þar sem börnin eru að skamma heimilisföðurinn fyrir mannát:

– Rangt að borða fólk! hváði pabbi. Er þá rangt að fara í stríð og hjóla á gangstéttum? Hann leit hugsi út um gluggann. Það getur vel verið að það sé rangt að borða fólk en það fer bara enginn eftir því hvað er rangt og hvað er rétt.

Þessi setning fangar kjarna bókarinnar, segir gagnrýnandi Sozialistische Tageszeitung. Síðan er fjallað í nokkuð löngu máli um boðskap sögunnar út frá undirtitlinum "Bók fyrir börn með foreldravandamál". Sagt er að nú þurfi rótækar bækur á borð við þessa til að ná til barna sem eru orðin dofin af þeim hryllingi sem þau hafa fyrir augum dags daglega. Bókin sé gagnleg alveg eins og bragðsterkt læknislyf ( wie bittere Medizin) til að börnum sem búa við erfiðleika og ofbeldi geti liðið betur.


Reply

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Images can be added to this post.
More information about formatting options