Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

Í tugthúsinu

DronningensgadeÉg heyri í­ umferðinni fyrir utan þó að ég sjái hana ekki þarna sem ég sit við gluggann í­ tugthúsinu við Drottningargötu 66 í­ Kaupmannahöfn. Glugginn ví­sar út í­ portið þar sem nokkrir fangar spí­gspora letilega í­ hringi á sprungnu malbikinu. Vörður opnar hliðið með því­ að slá inn dulkóða á lí­tið lyklaborð á veggnum og sendiferðabí­ll þeytist inn á mitt svæðið með ferskar birgðir um leið og og hliðið lokast aftur.

Hinu megin við portið og fyrir utan eiginlegt fangelsissvæðið er heildsala með í­þróttavörur að mér sýnist. Þar er hátt til lofts eins og hjá mér og hví­tir veggirnir eru þaktir í­þróttaskóm frá Adidas og Nike. Ég sé hvernig kúnni reikar um og þuklar á sýnishornum hálf utan við sig. Tí­mirðu þessu ekki helví­tið þitt?

Bill og Bob skiptast á að koma fram og banka á rúðuna hjá mér. Þeir hlæja hæðnislega og segja eitthvað en ég heyri ekki orðaskil í­ gegnum rúðuna. Þeir trufla mig óreglulega, 3 - 4 sinnnum á sólarhring. Ef þeir halda svona áfram verð ég sjálfsagt búinn að læra að lesa á varir áður en vikan er liðin. Það er einkennilegt hvernig fólk virðist vera í­ hægagangi þegar maður heyrir ekkert í­ því­. Varir Bills hreyfast óeðlilega hægt. Hann er eins og fiskur. Þegar hann fletur út nefið á rúðunni og blæs þannig að móða myndast í­ tveimur taumum sitt hvoru megin við hökuna umbreytist hann í­ risastóran rostung eins og þann sem ég sá á Animal Planet fyrir stuttu.

Ég kinka kolli eins og til samþykkis. Það borgar sig ekki að vera með einhvern derring við þessa menn. Dvölin gæti dregist á langinn.


Comment viewing options

Select your preferred way to display the comments and click "Save settings" to activate your changes.

Kvennafangelsið

Fyrst hélt ég að þetta væri Dronningens Tværgade. Þar er ekkert fangelsi. Sló þessu svo upp á KRAK og þá skýrðist málið. Var einhvern tíma kvennafangelsi þarna og svo er kannski enn.
http://www.amagerbilleder.dk/cph/torvegade.htm


Mikið rétt

Kvennafangelsi segiru? Maður passar sig allavega á því að beygja sig ekki eftir sápunni. Svo mikið veit ég.

Þeir voru að tala um það í matsalnum að það er einhver geðveik félagsleg tilraun i gangi. Það er þess vegna sem við fáum að hanga á netinu allan daginn. Það er sagt að ITU mónitori þetta allt meir eða minna.


Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Images can be added to this post.
More information about formatting options