Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

Vetrarsól er að klára þriðja upplag!

Aðal kikkið í kreppunni er auðvitað að fylgjast með velgengi Auðar núna fyrir jól. Vetrarsól er að klára þriðja upplag eins og sjá má á heimasíðu hennar. Stefnir í að verða ein af metsölubókunum á mjög góðri vertíð. Svo var salan til Þýskalands ansi feitur biti. Þið getið lesið betur um þetta á Jónsdóttir punktur komm.

Ég hef svolítið gert i því að keyra konuna mína á milli upplestra. Gárungarnir meðal upplestrarhesta eru farnir að kalla mig “lífvörðinn“, sumir eru beinlínis hræddir við mig enda er ég tæpast árennilegur þegar skammdegisskapið kemur yfir mig. Annars er kært með íslenskum rithöfundum enda sómafólk upp til hópa.

Bækur vertíðarinnar fyrir mér - allavega hingað til - eru auðvitað Vetrarsól og svo kannski Konur eftir Steinar Braga sem er ansi öflug steypa. Bókaútgáfan Níels gefur út. Hér er svo kvót frá mér:

"Konur er Tómas Mann á Methamphetamíni."
totil.com

Sjálfur er ég brattur en rétt að rakna úr rothöggi kreppunnar og hef átt erfitt með að koma mér að bloggi. Kannski málið að prófa nokkur svona örblogg. Ég er mikið að
vinna í næsta handriti - án þess að ég vilji tala of mikið um það. Höfundar virðast fara flatt á að blogga um næstu handrit.

Talandi um Þýskaland þá sýnist mér ég geta farið að hita upp fyrir bókahátíðina í Leipzig í mars.
Mannætan mun gera skurk þar. Meira um það síðar.


Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Images can be added to this post.
More information about formatting options