Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

Útrásarhjónin — Köbentúr 2009

Við Auður erum að fara í smá útrás á næstu mánuðum.
Verðum í Köben 1-15 október og aftur 6-17 nóvember. Íbúðin í 101 RVK er til leigu eða láns á meðan.

Ég tók eftir því að þegar ég setti upplýsingar um væntanlegt ferðalag í status á Facebook þá fóru allskonar hjól að snúast. Póstar bárust frá vinum sem við höfum ekki séð lengi og svo tóku landflótta Íslendingar sig til við að skipuleggja heila bókahátíð — þó ekki bara utan um okkur tvö. Þess vegna ætla ég að bæta um betur og blogga.

Dagskráin er svohljóðandi, enn sem komið er.

Kaupmannahöfn 1-15 október

3. október
12:00 - 17:00
Blågaardsplads, Nørrebro.
Auður Jónsdóttir tekur þátt í maraþonupplestri ásamt fjölda danskra höfunda.Þetta er gert til stuðnings Írökunum sem var vísað úr landi nýlega.

(Ýmsir upplestrar á bókasöfnum og í bókabúðum eru í vinnslu)

9. október — Kulturnat
18:00
Store Strandstræde 18, Bakgarður
Auður les upp úr „Depositum“ og „Dem i kælderen“ á uppákomu á vegum Norrænu Ráðherranefndarinnar.
Það er búið að lofa ca 1000 áhorfendum.

19:00
Nordatlantens Brygge
Strandgade 91
Þórarinn Leifsson les upp úr Fars Store hemmelighed fyrir barnslegar sálir á Bryggen.

20. október.
Bókasafn Ömmu Huldar kemur út á Íslandi.

Kaupmannahöfn 6-17 nóvember

Depositum (Tryggðarpantur) kemur út í Danmörku og Svíþjóð.

8. nóvember
13:00
Helsingborg Stadsteater, Helingborg, Svíþjóð.
Auður les upp fyrir ca 600 „bokälskare“ á uppákomu sem heitir „Nordiska Bokens Dag för Öresundsregionen“.
Aðrir höfundar eru: Christina Hesselholdt, Danmark; Kjell Westö, Finland; Anne Holt, Norge; Klas Östergren, Sverige.

12. november
09:00
Blågårdens Bibliotek
Blågårds Plads 5, Nørrebro.
Þórarinn les upp fyrir 5. bekk.

20:00 (Óstaðfest)
LiteraturHaus
Møllegade 7
Nokkrir Íslendingar lesa upp.
Höfundar fyrir utan okkur verða Huldar Breiðfjörð, Sölvi Björn Sigurðsson.

14. november
Bogforum (árleg bókamessa í Danmörku).
Standur nr.16
Þórarinn kynnir Fars Store hemmelighed.
Mannakjöt í boði.

15. november
Bogforum.
Balkonscenen
Auður í samtali við Claus Clausen um „Depositum“.

Uppfærist síðar.

Auður +354 8943984
Þórarinn +354 6593603


Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Images can be added to this post.
More information about formatting options