Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

Bókasafn ömmu Huldar kemur út í Danmörku

Foto: (c) Nils Bjervig/BogMarkedetFoto: (c) Nils Bjervig/BogMarkedetBókasafn ömmu Huldar á dönsku • Upphlaup á bókahátíð • Viðtal í stórblaðinu Politiken

Forlagið Torgard hefur gert samning um útgáfu síðustu bók Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar í Danmörku á næsta ári. Þórarinn vakti talsverða athygli með mannakjötsatriði sínu á Forum-bókamessunni í Kaupmannahöfn nýverið. Kynningin fór fram í tilefni af útgáfu bókarinnar Leyndarmálið hans pabba í Danmörku. Færeyskur kokkur útbjó sérstakan fingramat sem líktist mannakjöti. Gestir messunnar gæddu sér á fingrum seinheppinna smiða, heilaslettum kennara, endurskoðendastroganoffi og volgu dönsku blóði. Uppátækið olli á tímabili hálfgerðu öngþveiti fyrir utan bás Forlagsins Torgard sem gefur út bækur Þórarins í Danmörku.

Það var hins vegar ekki bókahátíðin sem dreif Tinu Maríu Winther ritstjóra bókablaðs Politiken af stað til íslands til að taka viðtal við höfund mannætubókarinnar. Hún mun haf hrifist sérstaklega af hryllilegum myndskreytingunum. Viðtalið birtist í bókablaði Politiken 12. desember næstkomandi.


Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Lines and paragraphs break automatically.
  • Images can be added to this post.
More information about formatting options