Illustration

  THORARINN LEIFSSON : WRITER AND ILLUSTRATOR

blogs

Auður á forsíðu bókablaðs Politiken

PolitikenVeglegt opnuviðtal við Auði Jónsdóttur rithöfund birtist í bókablaði Politiken í tilefni af útgáfu Tryggðarpants í Danmörku. Bókin – sem heitir Depositum á dönsku – fjallar um árekstra ólíkra menningarheima. Auður lýsir reynslu sinni sem innflytjandi í Danmörku, hversu erfitt það sé fyrir Íslendinga að gera sig skiljanlega á dönsku. Hún segist jafnframt sakna málefnalegrar umræðu Danaveldis. Að lokum lýsir hún því yfir að Ólafur forseti hafi nauðgað lýðræðinu í nafni lýðræðis.

Viðtalið í PDF. 3 síður.


Einkadans — dansar fyrir peninga

Ég dró sængina yfir haus og beið örlaga minna. Auja færði mér heitt te með hunangi sem sló á hóstann um sinn. Síminn suðaði sms-skilaboð annað slagið. Rúmið rakt eftir kaldan nætursvitann og sjálfsmyndin rjúkandi rúst. Þannig leið þessi morgun í dauðakippum.
Ég átti að mæta í upplestur rétt fyrir utan Kaupmannahöfn eftir hálfan annan klukkutíma. Færeyingurinn, útgefandi minn, hafði sent heilsíðu úr hverfisblaðinu í tölvupósti. Á blaðsíðu 16 brosti ég montinn framan í ljósmyndarann undir fyrirsögninni „Frásagnarverkstæði á lestarstöðinni“. Á sömu síðu blasti við mynd af valdsmannslegum kennara sem veifaði út öllum öngum fyrir framan heilan bekk af krökkum. Ég varð að klára þetta.


Viðtal í Politiken

Hér má nálgast PDF með viðtalinu sem birtist í bókablaði Politiken. Þetta er opna í miðju bókablaðinu með vísun frá forsíðu. Og hér má lesa vefútgáfuna.


Bókasafn ömmu Huldar kemur út í Danmörku

Foto: (c) Nils Bjervig/BogMarkedetFoto: (c) Nils Bjervig/BogMarkedetBókasafn ömmu Huldar á dönsku • Upphlaup á bókahátíð • Viðtal í stórblaðinu Politiken

Forlagið Torgard hefur gert samning um útgáfu síðustu bók Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar í Danmörku á næsta ári. Þórarinn vakti talsverða athygli með mannakjötsatriði sínu á Forum-bókamessunni í Kaupmannahöfn nýverið. Kynningin fór fram í tilefni af útgáfu bókarinnar Leyndarmálið hans pabba í Danmörku. Færeyskur kokkur útbjó sérstakan fingramat sem líktist mannakjöti. Gestir messunnar gæddu sér á fingrum seinheppinna smiða, heilaslettum kennara, endurskoðendastroganoffi og volgu dönsku blóði. Uppátækið olli á tímabili hálfgerðu öngþveiti fyrir utan bás Forlagsins Torgard sem gefur út bækur Þórarins í Danmörku.


Dómar & umfjallanir



„Dúndurskemmtilegt“
Egill Helgason / Kiljan

„Þetta er vísindaskáldsaga fyrir börn um kreppuna, skrifuð af brjáluðu hugmyndaflugi og endalausri virðingu fyrir börnum.“
Ásgeir H. Ingólfsson/ kistan.is

„Alveg hryllilega skemmtileg bók. Sérlega frískandi og hollur lestur.“
Freyr Eyjólfsson / Rás 2

„Ég held að hér hafi bæst við perla í íslenskar barnabókmenntir. Því gefum við bókinni okkar bestu meðmæli.“
Sigríður B. Thorarensen / eyjan.is

„Pottþétt besta bankahrunsbókin fyrr og síðar. Mér finnst ég alltaf hafa himinn höndum tekið þegar ég rekst á svona flottar, væmnislausar en samt hlýjar barnabækur. Svona á að gera þetta!“
Guðrún Eva Mínervudóttir


Útrásarhjónin — Köbentúr 2009

Við Auður erum að fara í smá útrás á næstu mánuðum.
Verðum í Köben 1-15 október og aftur 6-17 nóvember. Íbúðin í 101 RVK er til leigu eða láns á meðan.

Ég tók eftir því að þegar ég setti upplýsingar um væntanlegt ferðalag í status á Facebook þá fóru allskonar hjól að snúast. Póstar bárust frá vinum sem við höfum ekki séð lengi og svo tóku landflótta Íslendingar sig til við að skipuleggja heila bókahátíð — þó ekki bara utan um okkur tvö. Þess vegna ætla ég að bæta um betur og blogga.


Íslensk mannæta á hvíta tjaldið

Af Visir.is: „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort þetta verði leikin mynd eða teiknimynd. Ég hallast frekar að því að þetta verði teiknimynd," segir Þórarinn Leifsson en hann, ásamt konu hans Auði Jónsdóttur, ætlar að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bók Þórarins, Leyndarmálið hans pabba.


Vetrarsól er að klára þriðja upplag!

Aðal kikkið í kreppunni er auðvitað að fylgjast með velgengi Auðar núna fyrir jól. Vetrarsól er að klára þriðja upplag eins og sjá má á heimasíðu hennar. Stefnir í að verða ein af metsölubókunum á mjög góðri vertíð. Svo var salan til Þýskalands ansi feitur biti. Þið getið lesið betur um þetta á Jónsdóttir punktur komm.


Vetrarsól - komin út

Vetrarsól - WintersunVetrarsól - WintersunÍ nýrri skáldsögu sinni, Vetrarsól, teflir Auður Jónsdóttir saman ólíkum heimum og varpar fram spurningum um lífsgildi, lífsviðhorf og lífsblekkingu – rétt eins og í hinum rómuðu verðlaunabókum Tryggðarpanti og Fólkinu í kjallaranum. Með óvæntum söguþræði og frumlegri sýn á tilveruna gefur Vetrarsól fyrri sögum höfundar ekkert eftir.


Viðbjóðslega góður dómur í þýskalandi

Þýska dagblaðið Sozialistische Tageszeitung fjallar ýtarlega um Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarinn Leifsson i sérstöku aukablaði um bókahátíðina í Frankfurt. Bókin kemur út fyrir þýskumælandi markað í næstu viku. Blaðið segir meðal annars að þvílík bók hafi aldrei verið skrifuð áður, þetta sé ótrúleg og viðbjóðsleg hryllingssaga.


Syndicate content