Um Þórarinn
Þórarinn Leifsson er fæddur 1966. Hann stundaði myndlistarnám við Listaháskóla Íslands á árunum 1984-1989, á því tímabili gerðist hann einnig götulistmálari í Evrópu.
Eftir útskrift starfaði hann við skiltamálun, myndskreytingar, auglýsingahönnun og vefsmíði. Hann hefur myndskreytt bækur, bókakápur og blaðagreinar. Meðal verka hans eru myndskreytingar við röð ævintýra eftir H.C. Andersen sem kom út víða á Norðurlöndum.
Fyrstu textaskrif voru í formi myndasagna í dagblöðum og tímaritum 1990-1994. Hann var meðhöfundur að barnasögunni Algjört frelsi (2001) ásamt Auði Jónsdóttur. Fyrsta skáldsaga hans handa börnum, Leyndarmálið hans Pabba, kom út árið 2007. Hún hefur verið þýdd og gefin út í Þýskalandi og Danmörku. Síðan kom út Bókasafn Ömmu Huldar (2009) sem fékk Barnabókaverðlaun menntaráðs 2010 og var tilnefnd til Norrænu barnabókarverðlaunana í janúar 2011.
Nýjasta bók Þórarins, Götumálarinn kemur út í október 2011. Um er að ræða endurminningar með skáldlegu ívafi frá flökkuárum höfundar. Bókin er ekki ætluð börnum.